"You can destroy your now by worrying about tomorrow."
29.04.2007 22:01:14 / sigrunbj

Góðan dag góðir hálsar.

Já ákvað að drita niður hérna einhverjum skitnum línum mér til gamans:) Lítið eftir að skólanum sem eru bara góð tíðindi. En frá því seinast þá hefur ýmislegt drifið á dagana. En það sem ber helst að nefna er Söngkeppni framhaldskólanna sem ég tók þátt í fyrir hönd framhaldskólanna með þeim Simma og Ödda. Þessi Akureyrarferð var bara snilld í alla staði, Öll atriðin voru geðveikt flott!! Virkilega gaman að fá að syngja á svona sviði fyrir framan allan þennan fjölda af fólki...Eitthvað sem ég vonast eftir að gera aftur;) 
Buff spilaði undir með okkur og er þessi hljómsveit snilld:D.. Ég var þó ekki að fíla hann Pál Óskar, spilaði allt of mikið Techno á ballinu sem var eftir keppnin...
Nú svo var ég að ljúka miðstigi í söng í seinustu viku :D Sem gekk bara vel, ég náði allavegna. Prófdómarinn minn var engin annar en Bergþór Pálsson.
Spurning hvort maður ætti að endurvekja bloggheiminn hjá sér.. Tjahhh.. veit ekki ;)

Lét eina mynd fylgja af okkur Glys og glamúr :D

Sigrún Björk

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 19:39:03 / sigrunbj

Lítil jól ????:)

Sælar Stúlkur..

Það er svo langt síðan við hittum og gerðum eitthvað svona sniðugt saman :D Hvernig væri að við hittumst og hefðum svona fínan kvöldverð. Vera svolítið fínar í taujinu :) Smá lítil jól eins og voru alltaf í grunnskólanum. CHill og gera eitthvað gaman saman ;) kannski fyrir jól, måske på fredag...??? Við getum líka gert eitthvað svona sniðugt á milli jóla og nýárs svona í tilefni þess að við erum í fríi frá skólanum. Allar hugmyndir um eitthvað sem við getum gert um kveldið vel þegnar.. Mjög líklegt að við getum verið hérna heima hjá mér :D þyrftum bara að ákveða kvöld þar að segja ef þið eruð til, kommentið og látið vita af ykkur. :D

Sigrún Bjéé


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 10:20:38 / sigrunbj

PÁSA

Nenni ekki þessu blogg veseni.. er allavegna í pásu.!


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 00:17:29 / sigrunbj

5. júlí 2006

Stúlkan búin að skella inn myndum frá Mallorca ætla líka að skella inn myndum síðan ég var í london og svona rugl, stúlkan er að standa sig í þessu.. núna er bara að vinna á fullu, fór samt heim í gær hálf slöpp..:$ en kom þó fun hress í dag og elva var eitthvað að kasta í mig og setja inn á mig fiskinnifli, var ekki alveg að fíla það sko.. en nú fer að styttast í að fiskurinn fari að verða búinn og þá förum við að gera annað þarna í þórsnesi..;) Svo kom Saara frænka um helgina.:D Svo bauð ég maríu og unni til að koma og klára nammið mitt frá útlandinu.. shitt þær voru eins og hakkavél, nei held að eiríkur hafi etið mest af því :D Hef bara ósköp lítið að segja, ætla að halda áfram að setja einhverjar myndir inná.

Ferskar :D

út á Mallorca beibí

Sigrún bj


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.07.2006 17:22:39 / sigrunbj

komin heim!1

Blogg 1. júlí 2006.

Ákvað að blogga víst að maður er komin heim, reyndar kom ég heim á miðvikudaginn, Og fór maður strax í vinnuna á fimmtudeginum ekkert elsku mamma hér enda búin að vera í fríi í 3 vikur:D en svo var bara vinna fimmtud. og föstudag. og síðan skellti ég mér út í ólafsvík á bryggjuballið það eru s.s færeyskir daga ;) með Sigurlín, Sunnu G og Kristínu L í gær sem var mjög fínt, þó mér fannst nú lítið varið í þetta bryggjuball. En við stelpurnar getum alltaf skemmt okkur ;) Komum síðan bara heim aftur um nóttina! Er bara ekki viss hvað maður gerir í kvöld var að frétta að Saara frænka væri að koma á eftir :D

En ætla að segja ykkur aðeins frá útlandaferðinni minni, fyrir þá sem vissu ekki eða tóku ekki eftir því að ég var í burtu í þrjár vikur !!:D þá var ég út á Mallorca..

  • Að liggja í sólbaði og lesa slúðurblöð var sígilt, þó að ég sé ekki brún!!
  • Fylgjast með HM, bæði bara upp í herbergi og á barnum á hótelinu:D
  • Nú svo skelltum við okkur í vatnsrennibrautagarð og þar tókst mér að missa niðrum mig bikinítoppinn þegar ég kom úr einni rennibrautinni og tók ekkert eftir því strax, stóð ekki hópur af karlmönnum fyrir neðan rennibrautina og sáu mig, þá var allt í einu byrjað að klappa og öskra og skildi ég auðvitað ekki neitt en fattaði síðan að ég þyrfti að laga bikinitoppinn:^) fremur vandræðalegt, en ekki nóg með öskrin og klappið þá löbbuðu að mér karlmenn og þökkuðu mér fyrir8| ég svo sver það, og þetta voru ekkert ungir karlar, helv perrar bara.!!:whut:
  • Ég pabbi, hrafnhildur og Kristófer fórum svo eitt kvöldið í go kart, sem var þrusu gaman, í fyrstu ferðinni sem við fórum var kristófer á minni bíl en við þanngi að hann fór ekki eins hratt en hann svínaði fyrir mig þannig ég þurfti að keyra yfir grasið og gerði mig að fífli fyrir framan spánverjana, en annars rústaði ég þessari keppni, nei segi svona. eftir fyrstu ferðina ákváðum við að fara aftur því okkur fannst ósanngjarnt að kristófer hefði ekki verið á jafn hraðskreyðum bíl og við, (hehe.. okkur langaði bara svo mikið aftur að við notuðum það fyrir afsökun að fara aðra ferð :D).
  • Við fórum líka í einhverskonar dýragarð með einhverju páfagauka show og höfrunga show, það var nú kannski meira fyrir yngri systkini mín..
  • Svo var skellt sér í einhverskonar moll, eða þar voru helling af verslunum, Þetta hét Festival Park, og þar voru öll helstu merkin.. mjög ódýr..
  • Við leigðum okkur líka bíl í 3 daga og keyrðum um fjöllin og enduðum í einhverjum bæ sem hét deiá borið fram Deyja..og fórum á markað í inca, og aftur í Festival Park að versla meira.
  • Nú síðan var líka bara þægilegt að vera á hótelinu og vera í borðtennis og sundkörfubolta, billjard, skjóta úr byssy og síðan fór maður alltaf í fótbolta kl 17:00. Með fólkinu sem vann á hótelinu eignaðist alveg ágæta vini í hótelcrewinu þarna þér hétu Eric, Thomas og Mikkel og síðan kynntist ég eiginlega bara Önnu Marie seinastakvoldið:S! Nema að það væri einhver spennandi leikur í gangi ;):lol:
  • Á kvöldin var maður oftast á hótelinu að horfa á showin sem voru þar í boði, maður fór líka bara út á röltið eða gekk göngugötuna, fórum líka eitt kvöld að skoða gamlabæinn..

Held að þetta séu svona aðalatriðin, ;) en ég lofa að það komi myndir jafnvel myndbönd úr ferðinni. Ætla að bæta aðeins þessa síðu sko:D 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 13:19:06 / sigrunbj

Enn á Mollorca:D

jaeja er ennta herna uti i hitanum.. nu eg vil nu einnig oska ykkur ollum gledilegans hatid i gaer tar sem tad var 17 juni ta.

Vid islendingarnir herna uti a mollarca hittumst oll og marserudum um baeinn og voktum mikla athygli kannski vegna tess ad tad turfti ad loka einni adalgotu baejarins a medan vid marserudum yfir syngjandi med ludra og veifandi fanum.

nu tad sem eg gerdi a 17 juni. er eftirfarandi

  • vaknadi og systkini min og pabbi for eitthvert nidur i bae ad hitta einhverja islendinga og far ai eitthvad volundarhus en ég ákvad ad vera med mommu uppa a hoteli i solbadi :D
  • komst ad tvi ad tad var enginn skemmtilegur leikur a HM sem mer langadi ad sja tannig eg for i fotbolta med einhverju folki og tad var gedveikt gaman, svo foryum vid oll ásamt Erik stráki sem vinnur á hótelinu herna Evelina hann er svartur :D ;) í strandblak :D sem var mjog skemmtilegt
  • nu svo var haldid i tessa skrudgongu og sidan farid ut ad borda a einhverjum saenskum stad, hehe og vid isl. ad vinna ta i handboltanum uss.. en svo var bara haldis heim eftir vel heppnadan dag
  • vona ad tid hafid haft tad gott, fretti ad tad hefdi ekki verid neitt spes vedur

Svo vaknadi eg i morgun og for ad skjota ur skammbyssu.. sa ad tad var ekki fyrir mig hehe

tar til sida SBS


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 20:27:48 / sigrunbj

úti á mallorca

jaeja buin ad vera herna i tvo daga 30 stiga hiti i dag og madur er soddid solbrenndur =/ hehe uppss.. en annars bara allt fint ad fretta.. hotelid er gedveikt fint og allt tad daemi, svo a morgun erum vid ad fara i einhvern skemmtigard med einhverjum pafagaukum og hofrungum. en eftir hadegi ta forum vid a einhvern markad ;) hugsa til ykkar heima, serstaklega fiskikonanna:D en heyri i ykkur seinna:*


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 18:03:27 / sigrunbj

5. júní 2006

Já þá styttist í það að ég fari út fer s.s 7. júní. ;)til mallorca vonandi munið þið sakna mín
en það verður internetaðgangur þarna á hótelinu, og svo er tækjasalur (gym), sauna, tyrkneskt nudd, geðveik sundlaug og leikjasalur og tennis og svo get ég lengi talið... mun hugsa til ykkar :D :*
og það má ekki gleyma því að maður er útskrifaður úr grunnskóla og buin að fá útúr samræmdu.. og er vel sátt :D allir eru búnir að heyra um skólaslitin því ég er alltaf nokk sein að blogga, ég meina betra seint en aldrei. ræt ? En vil bara óska öllum bekkjarfélögum mínum og jafnöldrum til hamingju með útskriftina :D
  • síðan er maður að fara út að éta með bekknum í kvöld á fimm fiskum.;)
  • og svo vinna á morgun :$ sem er fínt.. og svo eftir vinnu er haldið til rvk.
  • missi því miður af leiknum hjá drengjunum á morgun..
  • verð ekki komin heim fyrr en eftir þrjár vikur..
en mun ábyggilega hafa samband við ykkur eitthvað á meðan ég er úti.. þar til síðar
Sigrún bj:*

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 20:18:58 / sigrunbj

27.maí 2006

jæja.. ætla vera svo töff að setja svona inná hjá mér;)


1.Hver ert þú ?

2.Erum við vinir ?

3.Hvenar hittumst við fyrst og hvernig ?

4.Ertu hrifin/nn af mér ?

5.Langar þig að kyssa mig ?

6.Láttu mig hafa gælunafn og útskírðu afhverju þú valdir það ?

7.Lýstu mér í einu orði

8.Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst ?

9.Lýst þér ennþá þannig á mig ?

10.Hvað minnir þig á mig ?

11.Ef þú gætir gefið mér eitt, hvað mundi það vera ?

12.Hversu vel þekkir þú mig ?

13.Hvenar sástu mig síðast ?

14.Hefur þig einhvern tíman langað að segja einhvað við mig en ekki getað það ?

maður verður að vera með í trendinu skomm..


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 23:48:37 / sigrunbj

25. maí 2006

jæja langt, langt síðan ég hef bloggað. Margt hefur drifið á dagana hjá mér síðan seinast.
jæja ætla að testa að skrifa svona punkta blogg.
  • Lauk samræmdu
  • Kláraði áfangana í fsn.
  • fór í útskriftarferð sem var virkilega skemmtileg.
  • Þegar við komum heim hófust chill dagar í skólanum og var lítið sem ekkert gert seinustu daga fyrir utan að klára lokaverkefnið, sem var um Árna Thorlacius og norska húsið og veðurathuganir hans.
  • Byrjaði að vinna. Í Fiski ... hálfan daginn.
  • 23. seinasti skóladagurinn okkar og þann örlagaríkadag var einnig seinasta bekkjarkvöldið okkar, en þar sýndum við tryllirinn margföldunartöfluna. Öllum til mikillar ánægju.
  • En núna þar sem grunnskólaárum mínum er lokið!!! komin í frí er ég byrjuð að vinna allan daginn í fiski. eða frá 08:00-16:00 en það er fínt...
  • Svo voru tónlistarskólaslitin í dag. jæja ég kom mér vel fyrir í stólnum í kirkjunni ekki neitt spariklædd eins og flestir aðrir þar. Enda bjóst ég við því að sitja í stólnum allan tímann en nei nei.. allt kom fyrir ekki og þurfti ég að standa upp og taka við skírteini þess að ég hafi klárað 1 stig í tónheyrn.. stóð ég ekki þarna upp með krökkum aðallega úr 3-4 bekk það bjargaði mér þó að Gísli og Jón Viðar voru þarna líka þannig ég leit aðeins betur út.. vona ég :$ 
  • Gunnhildur Gunnarsdóttir er núna stödd minnir mig í svíþjóð að keppa í körfu stúlkan komst í landsliðið og læti stolt af stúlkunni, og er maður að fylgjast með henni á netinu.
  • Svo eru skólaslitin 2. júní
  • Svo er utanlandsferð 8 júní.
  • OG njóta sumarsins :D
Jæja.. held það sé ekki fleira í bili.... þar til síðar
Sigrún Bj

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 19:53:58 / sigrunbj

grillaður banani með súkkulaði

jæja :D eitt próf eftir, stærðfræði.. mér er bara búið að ganga þokkalega í þessum prófum, og nú er bara að bíða eftir  að fá einkunnirnar. En til að dreifa huganum frá þessum einkunnum þá förum við bekkurinn í óvissuferð á morgun, en því miður þurfa krakkarnir að bíða eftir mér og auði því við förum í einhvern upprifjunartíma fyrir stæ prófið í fsn næsta mánudag=/ þannig nýbúinn í samræmdum prófum og þarf að drífa mig í næstu.. en þýðir ekki að gráta þetta heldur halda bara ótrauð áfram. En svo er áætlunin að vera komin fyrir ball á föstudeginum, sem við krakkarnir erum búin að grátbiðja um að fara á eða þar að segja nokkur af okkur :D ég veit ekki en ég er bara í geðveikri stemmingu fyrir eitt hresst ball þó svo að þetta sé haldið á kaffi 69 í grundarfirði, er mig minnir. Þetta verður stemmari. Svo er eiginlega skólinn búinn á morgun, fyrir utan  skyndihjálpar námskeið sem verður í næstu viku svo erum við krakkarnir í 10 b. búinn í skólanum 24 :D já krakkar mínir, ég er að ljúka minni grunnskólagöngu, og finnst mér það hreint út sagt skrítið þar sem mér finnst virkilega stutt síðan ég skrifaði mína fyrstu sögu sjálf í 1 bekk og fyrsta lestrarprófinu, svo að flytja í hafnarfjörðin sveitastúlka frá reyðarfirði og breyting að flytja til hafnarfjarðar þar sem ég man eftir því að eitt sinn var ég hlekkjuð við staur í frímínútunum og reynt að girða niðrum mig, hehe þessir drengir byrja ungir en þá urðum við Ingibjörg bara redda því og meðal annars varalituðum okkur til að þykjast kyssa drengina til að halda þeim frá okkur eða þá vorum að hoppa úr rólum og meiða okkur án þess að fara gráta, klóra strákana, kyssa þá, æfðum okkur í kungfu heima í stofunni hennar en jæja ekkert verkaði :P uss..Vorum nett geggjaðar. Nú síðan að flytja hingað í hólminn, shitt. .mér fannst þið h ólmarar svo hallærislegir fokk.. haha myndirnar af fyrsta deginum mínum í skólanum eru hræðilegar ég horfi á ykkur eins og þið séuð ég veit ekki hvað ,,hallærisleg'' ég í einhverju svaka þröngum svörtum buxum og svörtuvesti, með svartatösku og þið ennþá í smekkbuxunum með kassatöskurnar og litríku fötunum ég hélt ég myndi fara yfir um. haha.. svo man maður auðvitað eftir á skólagöngu sinni í gamlaskólanum þegar Sunna reif fyrirgefðu bréfið frá mér fyrir framan alla niðri á klósettinu. Svo þegar við vorum komin í nýja skólann var maður alltaf svo hræddur um að maður væri svo hallærislegur og maður leit upp til eldri krakkana og ef manni fannst þau líta skringilega á mann, man ég allavegna eftir því að einu sinni fór ég heim að skipta um buxur því ég hélt að þeim findist þær asnalegar.. :'(  váá held ég muni sakna skólans. Þótt ótrúlegt sé.. en jæja held að það sé nú bara ótrúlega langt síðan ég hef bloggað svona mikið, jaa.. ef það hefur verið einhvern tímann

Í spilun john Farnham: you're the voice
Geðveikt flott lag:D svo er maður byrjaður að hlusta á þessa gömlu smelli sem foreldrar manns hlustuðu á þegar þau voru yngri ;) heyrumst :*

» 7 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 21:57:01 / sigrunbj

1. maí 2006

hæj.. jæja nú fara að skella á samræmd próf og eru ófá blogg sem fjalla um þessi blessuðu próf og nenni ég ekki að fara að skrifa um hvað maður er búinn að rotna mikið heima hjá sér við próflestur undanfarna daga. Þannig að öðrum efnum, við stúlkurnar í körfunni fórum að keppa í höllinni á föstudaginn seinasta ef ég man rétt. Ja allavegna unnum við ekki þann leik. Þó ég hefði getað sleppt því að fara til rvk og verið heima að læra..8|. En alltaf gaman að horfa á þær stöllur spila :D Svo er helgin búin að vera ósköp róleg.. Eyrún var líka hérna um daginn en ég hef nú bara engan veginn verið að standa mig í að blogga undanfarna daga, en það var æðislegt að hitta hana og þyrfti ég að hitta hana oftar, kannski maður kíki bara í reyðó í sumar ;) En auðvitað er kjellann að fara til MALLORCA í 3 VIKUR :D!!! jeee.. En hef ekkert að segja.. þannig við heyrumst bara eftir þessi próf.

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 17:52:02 / sigrunbj

19 apríl 2006

Einungis tvær vikur í þessi blessuðu samræmdupróf :D váá hlakka til að klára þessi blessuðu próf. Í seinustu viku fór ég til reykjarvíkur og við fjölskyldan vorum í íbúð þar, það var stuð fór í nokkur matarboð og hitti frænkur mínar, hehe við ætluðum að vera það gáfaðar að fara út að borða á páskadag, vera soddið grand á því. en nei nei ekkert opið og við enduðum með því að éta pulsu á einhverri sjoppu sem heitir jolli Pulsa var sem sagt páskadags maturinn minn:D en var reyndar búin að fara í matarboð fyrr um daginn;) Hey svo er Eyrún vinkona að koma á morgun :D og verður fram að sunnudag. Það verður stuð, hehe hún fær að sjá félagslífið hérna sem er alveg í hámarki, sem dæmi tek ég, ég og evelina fórum út í gær löbbuðum upp og niður aðalgötuna og hittum varla neinn í 2 og hálfan tíma, frekar sorglegt svo var nú reyndar farið inn og horft á imbann.. VIð verðum nú að getað toppað félagslífið á reyðarfirði. En annars er bara að vakna kl 7 á morgun á sumardaginn fyrsta og fara að vinna  jeijjj... Jæja ætli maður fari ekki að kíkja aðeins í skólabækur, þetta hefur verið formlega mest óspennandi páskafrí sem ég hef upplifað.. pojj.. heyrðu sjáumst


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 15:17:11 / sigrunbj

jæja páskafrí

jæja þá er maður kominn í páskafrí. Þó ég sé nú ekki viss hve mikið frí ég fæ, þar sem ég mun vera læra mest allt fríið..:( En fór í fermingu seinustu til Hlyns frænda, alltaf gott að fá góðan mat í góðra manna hópi. þar sem ég kom mér bara vel upp í rúmi með nammi skál í veislunni :D svo er maður búinn að fara í tvo aukatíma sem kennaranir hafa boðið upp á og á eftir að fara í nokkra í næstu viku. Sem er bara gott og blessað. Svo er ég að fara í sumarbústað með fjölskyldunni í dag, langþráð frí :D en ég kem held ég heim á mánudaginn. Er akkurat að hlusta á lagið með Snorra í útvarpinu nokkuð flott.:D spurningin hvort maður leggi sig í hálf tíma eða svo, er að drepast úr þreytu.. Hitti frænkurnar um helgina en ekki Sæunni :( en það koma aðrar reykjarvíkurferðir sem betur fer:D SVo er manni byrjað að hlakka til að taka þessi blessuðu samræmdupróf, og ljúka þeim bara af. Get ekki beðið eftir deginum sem ég kem útúr seinasta prófinu. úFf.. Þá getur maður loksins byrjað að hlakka til sumarsins, Það er spurning hvað ég eigi að gera í sumar..*-) haha kemur allt í ljós
Sjáumst og eigiði öll frábæra páska
Sigrún B

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 19:56:43 / sigrunbj

4. apríl 2006

jæja búnir að vera sorglegir 2 síðustu dagar er búin að liggja með þessa helvísku flensu, Kvef, beinverkir, hausverkur og hálsbólga. Það er nú ekki mikið sem ég hef gert undanfarna daga, jú ég fór á barbie.com og fór að mála brúður :D jeijj er að upplifa fyrsta bekkinn aftur :D jæja.. svo er linkur þarna make Ken hot:D rock on... en jæja var að uppgötva það að ég og leiðarljós eigum bráðum 10 ára afmæli saman, Já ég veit sorglegt. Haha... það er ótrúlegt maður getur sleppt því að horfa á þetta í nokkra mánuði en samt ekki misst af neinu :D En maður man eftir ófáum stundum sem ég og sunna fórum til ömmu hennar Hönsu fengum maltbrauð með smjör og osti og appelsínu svala, shitt held að þetta sé bara efni í bók, SIgrún og leiðarljós í 10 ár.. Hahaha sorglegt.:$ þið hugsið hahaha amma mín horfir á þessa þætti.. Ætla rétt að vona að ég komist í skólann á morgun þó maður sé með bullandi kvef, En nóg af þessu rugli... heyrumst minni á sex and the city í kvöld 22:50:D
SIgrún Nefrennsli...:^)

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4